Er óvissan um hvort fundarherbergið sé bókað og til klukkan hvað, að sóa tíma þínum?
JOAN hjálpar til við skipulagið. Öllum er á augabragði ljóst hvort fundarherbergið sé laust, eða hvenær það losnar.
Stjórnborð Joan veitir þér greiðan aðgang að öllum stillingum og virkni, hvenær og hvar sem er. Utanumhald er því einfalt og öruggt.
Einföld uppsetning.
Joan er komin til starfa innan nokkurra mínútna, án þess að leggja neinar snúrur. Sérhannaður segull gerir þér kleyft að festa Joan við alla fleti, jafnvel gler. Engar snúrur eða lagnir. Joan er orkuvænn kostur, 99% minni orkunotkun en hefðbundinn LCD skjár. Rafhlaðan endist mánuði án hleðslu.
Joan tengist gegnum þráðlausa netið þeim dagatölum sem eru í notkun í fyrirtækinu, svo sem Office 365, Microsoft Exchange, Google Workspace og iCal.
Joan styður íslensku, ensku, frönsku og þýsku ásamt fjölda annara tungumála.
Viltu vita meira? Hafðu samband.
Tæknilegar upplýsingar.
Skjár:
6” E Ink, (raf-pappír) skjár.
Texti er skýr og sést vel úr fjarska.
Mjög lítil straumnotkun.
180 gráðu sjónarhorn
1024 x 758 pixlar.
16 gráskalar
Joan styður:
Office 365 (Exchange online)
MS Exchange (Outlook)
Goggle Workspace
iCalendar (.ics)